Við birtum umsagnir um vörur á vörusíðunum okkar. Þetta eru raunverulegar umsagnir viðskiptavina um vöruna og þær nýtast öðrum viðskiptavinum sem ætla að kaupa vöruna til leiðbeiningar.
Svona söfnum við umsögnum:
Viðskiptavinum er boðið af handahófi að skrifa umsagnir eftir kaup á ákveðinni vöru. Þessi boð eru send með tölvupósti frá samstarfsaðila okkar, Yotpo. Yotpo safnar öllum umsögnum um vörur og geymir þær fyrir okkur.
Svona tryggjum við að umsagnir séu raunverulegar og trúverðugar:
Boð um að gefa umsögn um vöru verða eingöngu send til viðskiptavina sem keyptu og greiddu fyrir vöruna á vefsíðum okkar. Þeir sem hafa ekki keypt og greitt fyrir vöruna í gegnum vefsíðuna okkar geta ekki skrifað umsögn, þar sem aðeins er hægt að gera það í gegnum boðið í tölvupóstinum.
Hvaða upplýsingum er safnað:
Við biðjum viðskiptavini um að gefa keyptri vöru einkunn á skalanum 1 til 5 þar sem 5 er hæst. Viðskiptavinir geta svo skrifað nánari athugasemdir og deilt upplifun sinni af vörunni. Einnig er hægt að hlaða upp myndum með umsögninni.
Svona birtum við umsagnir:
Umsagnir eru birtar eftir handvirkt mat okkar. Við birtum allar umsagnir með örfáum undantekningum. Við birtum ekki eftirfarandi tegundir umsagna:
- Þegar umsagnaraðili skrifar ekki umsögn um keyptu vöruna heldur skrifar eitthvað annað sem honum liggur á hjarta.
- Þegar umsagnaraðili notar dónalegt orðbragð eða er með árásargjarnan tón (blótsyrði, einelti, hótanir o.s.frv.).
- Þegar umsagnaraðili nefnir önnur fyrirtæki eða vörur þeirra.